FORESTER
Traustur, tæknivæddur, öruggur
Forester sameinar hámarks öryggi, afkastamikla Symmetrical AWD fjórhjóladrifið, nýjustu kynslóð EyeSight® akstursaðstoðarkerfisins og endurbætta X-MODE torfærutækni. Með rýmilegu farþegarými, háþróuðum tengimöguleikum og einstökum aksturseiginleikum er þetta bíllinn fyrir þá sem vilja styrk, þægindi og áreiðanleika á öllum vegum – í hvaða veðri sem er.

HÖNNUN
Hámörkuð þægindi
Innra rými Forester er rýmra og þægilegra en nokkru sinni fyrr og veitir afslöppun fyrir alla farþega, sama hversu langt þú ferð.


HÖNNUN
Þægilegri sæti
Forester er rúmgóður að innan, með sérstaka áherslu á þægileg sæti sem veita góðan stuðning fyrir langar ferðir. Fram- og aftursætin eru rafstýrð auk þess að vera upphituð fyrir aukin þægindi á köldum vetrardögum.
HÖNNUN
11,6 tommu skjár
Stór 11,6 tommu snertiskjár gerir auðvelt að stjórna margmiðlun og öðrum gagnlegum aðgerðum. Einnig styður hann við fjölbreytt úrval af upplýsingatækni eins og Apple CarPlay ¹ og Android Auto ².


HÖNNUN
Snertilaus opnun
Ertu með fullt fang af farangri? Ekkert mál!
Hægt er að opna farangursrými Forester á snertilausan máta.

AFKÖST
Kraftmikill og lipur
Subaru Forester sameinar kraft og skilvirkni með endurbættum 2.5 L Boxer-vél, sem skilar meira togi og betri sparneytni en áður.
AFKÖST
Veghæð
Forester er tilvalinn fyrir íslenskar aðstæður með 22 cm veghæð. hönnunin er vandlega útfærð þannig að yfirbygging og grindin eru sérstaklega styrkt til að veita þér aukið öryggi.


AFKÖST
Fjórhjóladrifinn
Subaru Forester 25 er búinn Symmetrical All-Wheel Drive (AWD) fjórhjóladrifi, sem tryggir jafna og stöðuga dreifingu afl til allra hjóla fyrir hámarks grip í öllum aðstæðum. Kerfið er sjálfvirkt og aðlagar sig að breyttu landslagi, hvort sem það er blautt malbik, snjór, möl eða torfæra. Með lágum þyngdarpunkti og Boxer-vél skilar Forester framúrskarandi stöðugleika og betri stjórn í krefjandi aðstæðum.
AFKÖST
X-Mode akstursstillingar
X-MODE-stillingin býður upp á áreiðanlegri stjórn með einum hnappi. Tæknin í X-MODE tekur yfir stjórn vélarinnar, gírskiptingarinnar, samhverfs aldrifsins, hemlanna og annarra þátta til að auðvelda þér aksturinn. Skiptu þægilega á milli [SNOW / DIRT] eða [SNOW / MUD] stillinga í 11,6″ snertiskjánum svo X-Mode henti veginum sem þú ert á.

ÖRYGGI
Öryggis- og akstursaðstoðarkerfi
Subaru Forester er með nýjustu kynslóð EyeSight® akstursaðstoðartækninnar sem tryggir hámarks öryggi og aðstoð í akstri.

Subaru EyeSight akstursaðstoðarkerfið
Árekstrarvari
Kerfið greinir hraða þinn og hraða ökutækisins fyrir framan þig og bremsar sjálfkrafa ef líkur eru á árekstri.
Aðlægur hraðastillir
Aðlagar sig að hraða ökutækisins fyrir framan þig eða greindum umferðaskiltum.
Bíllinn heldur þannig stöðugu bili á milli þín og næsta ökutækis.
Akreinastýring
Kerfið sér um að halda bílnum á miðri akreininni.
Akreinavari
Viðvörun kemur upp ef það er bíll á þeirri akrein sem verið er að skipta yfir á.
Greining umferðarskilta
Bíllinn greinir löglegan hámarkshraða hverju sinni.
Sjálfvirk stilling aðalljósa
Bíllinn sér um að stilla hæð aðalljósa sjálfkrafa útfrá birtuskilyrðum og umferð.
Eftirlit með athygli bílstjóra
Skynjar athygli ökumanns og stingur upp á hvíld ef augnlokin eru farin að síga og lætur vita ef athyglin er ekki á veginum.
Neyðarhemlunaraðstoð
Ef hætta greinist mun bíllinn stöðvast að fullu.
Subaru öryggiskerfið
Blindsvæðisviðvörun
Lætur þig vita ef bíll er í blindsvæði bílstjóra þegar verið er að skipta um akrein.
Útgengisviðvörun
Þegar þú ert á leiðinni úr bílnum mun kerfið láta þig vita ef bíll nálgast að aftan.
Bílastæðahemlun
Hemlar sjálfkrafa ef hindrun greinist þegar verið er að leggja í stæði.
Bakkaðstoð
Hemlar sjálfkrafa ef umferð greinist fyrir aftan bílinn þegar verið er að bakka.
Umhverfismyndavél
360 gráðu sýn umhverfis bílinn sem hjálpar þér til dæmis að leggja í stæði.
NÁNARI UPPLÝSINGAR

Gerðirnar
Solterra
Outback
Forester
Þjónusta
Bóka tíma í þjónustu
Ábyrgðar- og þjónustubók
Hafa samband
Senda fyrirspurn
Bóka reynsluakstur
BL ehf. - Sævarhöfði 2, 110 Reykjavík - 525 8000