OUTBACK
Tilbúinn í hvað sem er
Það er fátt sem stendur í vegi fyrir þeim
sem ferðast á Subaru Outback.
Í Outback er fullkomlega samhæft fjórhjóladrif með
X-MODE stillingu fyrir erfiðar aðstæður.

HÖNNUN
Hámörkuð þægindi
Innra rými Outback eru rýmra og þægilegra en nokkru sinni fyrr og veitir afslöppun fyrir alla farþega, sama hversu langt þú ferð.


HÖNNUN
Þægilegri sæti
Outback býður upp á rúmgott innanrými, með sérstakri áherslu á þægileg sæti sem veita góðan stuðning fyrir langar ferðir. Fram- og aftursætin eru rafstýrð auk þess að vera upphituð fyrir aukin þægindi á köldum dögum.
HÖNNUN
11,6 tommu skjár
Stór 11,6 tommu snertiskjár gerir auðvelt að stjórna margmiðlun og öðrum gagnlegum aðgerðum. Einnig styður hann við fjölbreytt úrval af upplýsingatækni eins og Apple CarPlay ¹ og Android Auto ².

HÖNNUN
Opnanleg topplúga
Baðar innanrýmið í náttúrulegri birtu. Mismunandi opnunarstillingar í boði fyrir fersk loft á sólríkum sumardögum.

AFKÖST
Kraftmikill og lipur
Outback skapar öryggi undir stýri með stöðugu fjórhjóladrifi og einstaklega stöðugri BOXER-vél SUBARU. Þetta kerfi skilar stöðugu afli í öll fjögur hjólin til að tryggja aukna stjórn á alls konar vegum sem og við slæm akstursskilyrði.
AFKÖST
Veghæð
Outback er alvöru jepplingur með 21,3 cm háa veghæð. hönnunin er vandlega útfærð þannig að yfirbygging og grindin eru sérstaklega styrkt til að veita þér aukið öryggi.


AFKÖST
Fjórhjóladrifinn
Outback er alvöru sportjepplingur, tilbúinn í allar aðstæður. Hann er með mótorum að framan sem knýr öll fjögur hjólin stöðugt um leið og bíllinn byrjar að hreyfast. Aksturs- og hemlunarafl dreifist nákvæmlega á hvert einstakt hjól eftir aðstæðum þannig að þú færð gott grip á bæði blautum og hálum vegum.
AFKÖST
X-Mode akstursstillingar
X-MODE-stillingin býður upp á áreiðanlegri stjórn með einum hnappi. Tæknin í X-MODE tekur yfir stjórn vélarinnar, gírskiptingarinnar, samhverfs aldrifsins, hemlanna og annarra þátta til að auðvelda þér aksturinn. Skiptu þægilega á milli [SNOW / DIRT] eða [SNOW / MUD] stillinga í 11,6″ snertiskjánum svo X-Mode henti veginum sem þú ert á.

ÖRYGGI
Öryggis- og akstursaðstoðarkerfi
Subaru Outback er ævintýragjarn jepplingur með öryggi í fyrirrúmi. Nýjasta kynslóð EyeSight® akstursaðstoðartækninnar tryggir hámarks öryggi og aðstoð í akstri.

Subaru EyeSight akstursaðstoðarkerfið
Árekstrarvari
Kerfið greinir hraða þinn og hraða ökutækisins fyrir framan þig og bremsar sjálfkrafa ef líkur eru á árekstri.
Aðlægur hraðastillir
Aðlagar sig að hraða ökutækisins fyrir framan þig eða greindum umferðaskiltum.
Bíllinn heldur þannig stöðugu bili á milli þín og næsta ökutækis.
Akreinastýring
Kerfið sér um að halda bílnum á miðri akreininni.
Akreinavari
Viðvörun kemur upp ef það er bíll á þeirri akrein sem verið er að skipta yfir á.
Greining umferðarskilta
Bíllinn greinir löglegan hámarkshraða hverju sinni.
Sjálfvirk stilling aðalljósa
Bíllinn sér um að stilla hæð aðalljósa sjálfkrafa útfrá birtuskilyrðum og umferð.
Eftirlit með athygli bílstjóra
Skynjar athygli ökumanns og stingur upp á hvíld ef augnlokin eru farin að síga og lætur vita ef athyglin er ekki á veginum.
Neyðarhemlunaraðstoð
Ef hætta greinist mun bíllinn stöðvast að fullu.
Subaru öryggiskerfið
Blindsvæðisviðvörun
Lætur þig vita ef bíll er í blindsvæði bílstjóra þegar verið er að skipta um akrein.
Útgengisviðvörun
Þegar þú ert á leiðinni úr bílnum mun kerfið láta þig vita ef bíll nálgast að aftan.
Bílastæðahemlun
Hemlar sjálfkrafa ef hindrun greinist þegar verið er að leggja í stæði.
Bakkaðstoð
Hemlar sjálfkrafa ef umferð greinist fyrir aftan bílinn þegar verið er að bakka.
Umhverfismyndavél
360 gráðu sýn umhverfis bílinn sem hjálpar þér til dæmis að leggja í stæði.
NÁNARI UPPLÝSINGAR

Gerðirnar
Solterra
Outback
Forester
Þjónusta
Bóka tíma í þjónustu
Ábyrgðar- og þjónustubók
Hafa samband
Senda fyrirspurn
Bóka reynsluakstur
BL ehf. - Sævarhöfði 2, 110 Reykjavík - 525 8000